Í maí 2023 lauk uppsteypu síðustu íbúða við íbúðaruppbyggingu Smárabyggðar í 201 Smára.
Alls er því uppsteypu 493 íbúða ásamt verslunar- og þjónustuhúsnæði við Silfursmára lokið.
Fyrsta steypan fór í mót 8. ágúst 2017, eða fyrir 69 mánuðum síðan.
Alls eru nú 323 íbúðir tilbúnar og afhentar í verkefninu en unnið er við raflagnir í uppsteyptum rýmum.