Rafholt ehf. hefur samið um framkvæmdir við stækkun ION Hótel Nesjavellir. Um er að ræða stækkun við ION Adventure á Nesjavöllum til norðvesturs og breytingar á núverandi byggingu í tengibyggingu og álmu 2. Gistirýmum fjölgar um 22 herbergi, úr 42 í 64.
Arkitekt er A2F arkitektar og samræming er á höndum ÞK Byggingastjórn- og ráðgjöf. Rafholt ehf. sér um allar almennar raflagnir og stýringar.
Áætluð verklok eru sumarið 2024.