Skip to main content

Austurálma Keflavíkurflugvallar opnar formlega þann 20. mars  næstkomandi.

Framkvæmdir hófust í júní 2021 og hófst verkhluti Rafholts í ágúst 2022.

Með þessari viðbót stækkar flugstöðin um 30%, en helstu atriði framkvæmdarinnar eru:

  • 25.000 fermetra viðbygging
  • 6 ný brottfararhlið, þar af 4 með landgöngubrúm
  • 22.000 flughlað og fjögur flugvélastæði
  • BREEAM-vottuð bygging í samræmi við sjálfbærnistefnu Isavia

Austurálman er mesta stækkun flugstöðvarinnar frá opnun hennar og markar nýtt tímabil í þjónustu við farþega og flugrekendur.