Skip to main content

Almennir viðskiptaskilmálar

1. Viðskipti við Rafholt ehf.

1.1. Gildissvið skilmála þessara

Þessir skilmálar gilda um öll viðskipti og samninga Rafholts ehf., kt. 631002-2180, Smiðjuvegi 4b, 200 Kópavogi (hér eftir „Rafholt“ eða „félagið“) við viðskiptavini félagsins.
Skilmálar þessir ásamt eftir atvikum sérskilmálum (s.s. um þjónustu til eftirlitsskyldra aðila), þjónustusamningi og samningsviðaukum fyrir hvern viðskiptavin, fela að jafnaði í sér heildarsamning aðila um viðskipti þeirra. Stangist ákvæði skilmála þessara á við ákvæði sem finna má í sérskilmálum, þjónustusamningi eða samningsviðaukum skulu ákvæði þeirra síðarnefndu ganga framar þessum skilmálum.
Að öðru leyti teljast frávik frá þessum skilmálum ekki samþykkt af hálfu félagsins nema undirritað samþykki þess liggi fyrir.

1.2. Samningur aðila[IB2.1]

Samningur telst kominn á milli félagsins og viðskiptavinar þegar aðilar hafa skrifað undir þjónustusamning, viðskiptavinur samþykkt sérskilmála, samningsviðauka eða tilboð félagsins um þjónustu innan gildistíma slíks tilboðs, eða þegar viðskiptavinur byrjar að nýta þjónustu félagsins.
Sé ekki kveðið á um gildistíma samnings í samningi aðila skal hann gilda ótímabundið þar til honum er sagt upp, sbr. grein 1.3 í skilmálum þessum.

1.3. Uppsögn samnings

Sé ekki kveðið á um uppsagnarfrest í samningi á milli félagsins og viðskiptavinar skal uppsagnarfrestur vera [IB3.1]þrír mánuðir og skal uppsögn taka gildi um mánaðarmót.
Félagið getur hvenær sem er, fyrirvara- og bótalaust, sagt upp samningi við viðskiptavin vegna brots hans á samningsskyldum nema annað leiði ótvírætt af skilmálum þessum, sérskilmálum, samningum eða lögum. Eigi félagið viðskipti við viðskiptavin á grundvelli fleiri samninga en eins leiða brot hans á einum samningi til þess að félagið getur sagt upp öllum samningum sínum við viðkomandi viðskiptavin.

1.4. Samningslok

Við samningslok, af hvaða ástæðu sem er, skulu aðilar skila hvor öðrum innan 10 daga hvers konar eignum og efni, þar með talið hvers konar vél-, net- og hugbúnaði,[IB4.1] sem látinn hefur verið í té og sannanlega er í eigu gagnaðila eða hann hefur ráðstöfunarrétt yfir.
Við samningslok lokast aðgangur að hugbúnaði sem og að netþjónum og öðrum búnaði félagsins án tafar sé sá búnaður hluti af samningi. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að afrita öll gögn í sinni eigu, sem vistuð eru hjá félaginu, fyrir samningslok.
Önnur vinna sem fellur til vegna útleiðingar viðskiptavinar við lok samnings er gjaldfærð á viðskiptavin samkvæmt verðskrá félagsins.

1.5. Löggjöf

Um kaup viðskiptavina á búnaði frá félaginu gilda lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup þar sem ákvæðum þessara skilmála, sérskilmála, samninga eða viðskiptavenju milli aðila sleppir.

2. Sala og notkun á hugbúnaði [IB5.1]

Í sölu á hugbúnaði í skilningi skilmála þessara felst einungis réttur til notkunar á hugbúnaðinum en ekki framsal á eignarétti yfir hugbúnaðinum, nema um annað sé sérstaklega samið. Um sölu og nýtingu á hugbúnaði kunna, til viðbótar við skilmála þessa að gilda sérstakir skilmálar frá framleiðanda hugbúnaðarins teljast þá hluti af samningi aðila. Að öðru leyti fer um sölu og notkun hugbúnaðar eftir samningi aðila.
Hugbúnaður frá öðrum en félaginu er seldur á forsendum framleiðandans eða eiganda réttinda yfir hugbúnaðinum. Yfirleitt er um að ræða sölu á óframseljanlegum, hugverkaréttar bundnum réttindum til afmarkaðrar notkunar þannig að eignarréttur til hugbúnaðarins er ekki seldur, heldur aðeins réttur til að nota hann, háð þeim takmörkunum og bundin þeim skilyrðum sem framleiðandi eða eigandi hugbúnaðarins setur. Hugbúnað þriðja aðila má ekki selja, leigja, framselja eða afhenda öðrum nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Sama á við um opinn hugbúnað (e. open source software) sem kann að fylgja hugbúnaði eða lausnum félagsins eða vera hluti þeirra, eftir því sem við á. Notkun slíks hugbúnaðar er háð þeim leyfisskilmálum sem gilda um viðkomandi hugbúnað.
Viðskiptavini er með öllu óheimilt að framselja, afrita, fjölfalda, umbreyta, bakþýða eða hluta sundur hugbúnað, nema lög heimili annað.
Komi upp misræmi milli skilmála þessara og leyfisskilmála sem gilda um opinn hugbúnað eða annan hugbúnað þriðja aðila, skulu leyfisskilmálar viðkomandi rétthafa gilda að því marki sem þeir taka til viðkomandi hugbúnaðar.
Í þeim tilfellum sem viðskiptavinur felur félaginu rekstur hugbúnaðarkerfa frá þriðja aðila, skal viðskiptavinur senda félaginu allar tilkynningar sem berast frá framleiðanda er hann varðar eða sjá til þess að framleiðandi geri svo.
Viðskiptavini er aðeins heimilt að nota þann fjölda hugbúnaðarleyfa sem hann hefur keypt leyfi fyrir. Viðskiptavinur er ábyrgur fyrir því að óska eftir fjölgun leyfa, eftir því sem við á.
Viðskiptavinur ábyrgist jafnframt að hafa tilskilin leyfi til afnota af hugbúnaði sem er í notkun hverju sinni á netþjónum, tölvum eða öðrum kerfum sem félagið hefur veitt viðskiptavini aðgang að.
Viðskiptavinur skal framvísa sönnun þess að nauðsynleg leyfi séu til staðar fari félagið fram á það. Sýni viðskiptavinur ekki fram á að slík leyfi séu til staðar er félaginu heimilt að loka fyrir aðgang viðskiptavinar uns sýnt hefur verið fram á leyfin. Félagið getur þó jafnframt ákveðið að útvega tilskilin leyfi, þ.m.t. frá þriðja aðila, í þeim tilgangi að geta haldið áfram að veita aðgang að kerfum/búnaði, en viðskiptavinur skal þá skylt að endurgreiða félaginu fyrir kaup á slíkum leyfum.
Komi til úttekta af hálfu þriðja aðila skal viðskiptavinur vinna með félaginu að því að sýna fram á réttmæta notkun hugbúnaðar á þeim kerfum sem viðskiptavinur hefur aðgang að.

3. Leiga á búnaði

Leigi viðskiptavinur búnað eða aðra vöru af félaginu skal viðskiptavinur ábyrgjast að slíkur búnaður glatist ekki eða skemmist. Skal viðskiptavinur tryggja búnað með fullnægjandi hætti nema um annað sé samið.

4. Sala á búnaði

Félagið heldur eignarrétti að seldum búnaði þar til andvirði hans hefur verið greitt að fullu, og flyst eignarréttur því ekki til viðskiptavinar fyrr en full greiðsla hefur borist félaginu.
Áhætta af búnaði flyst til viðskiptavinar við afhendingu eða, ef félagið hefur tekið að sér uppsetningu, á uppsetningardegi. Búnaður telst afhentur þegar viðskiptavinur hefur veitt honum móttöku, en ef búnaðar er ekki vitjað eða honum ekki veitt móttaka á réttum tíma og það má rekja til viðskiptavinar eða atvika á hans vegum, flyst áhættan til viðskiptavinar þegar búnaðurinn er honum til ráðstöfunar. [A6.1][A6.2][A6.3]
Selji félagið notaðan búnað er hann seldur í því ástandi sem hann er við afhendingu og án ábyrgðar af hálfu félagsins, nema um annað sé sérstaklega samið. Félagið ábyrgist hvorki ástand, gæði, endingu né hæfi slíks búnaðar til tiltekins tilgangs.

5. Sala á þjónustu

Félagið veitir fagþjónustu við ráðgjöf, kerfishönnun, uppsetningarvinnu á búnaði, viðhald búnaðar og annað sem tilgreint er í samningi við viðskiptavin. Þjónustan kann að vera í stöðluðu formi eða aðlöguð að aðstæðum hverju sinni.
Í aðalatriðum er um eftirfarandi samningstegundir að ræða:
Verksamningur um ákveðið verkefni, sem skilgreint er í samningi, og gildir á meðan á vinnslu þess stendur. Verksamningur er óuppsegjanlegur á samningstímabili nema ákvæði um riftun eigi við eða aðilar hafi sérstaklega samið um annað. Viðskiptavinur skal greiða fyrir alla þjónustu, allan búnað og annað sem látið er í té fram til loka samningsins. Enn fremur skal hann greiða hliðstæð útgjöld, sem stofnað hefur verið til og óafgreidd eru á lokadegi samnings.
Þjónustusamningur er samningur sem gerður er á milli félagsins og viðskiptavinar um tiltekna þjónustu af hálfu félagsins. Slíkir samningar geta ýmist verið sérsniðnir að viðskiptavini eða staðlaðir fyrir ákveðna þjónustu.

6. Endurgjald og greiðsluskilmálar

6.1. Almennt

Gjöld fyrir búnað og þjónustu félagsins eru listaverð í gildandi verðskrám félagsins hverju sinni, sérverð eða önnur tilgreind verð í samningi. Öll verð eru tilgreind án virðisaukaskatts, nema annað sé tekið fram.
Staðgreiða skal fyrir búnað og þjónustu, nema samið sé sérstaklega um reikningsviðskipti. Í slíkum tilfellum sendir félagið viðskiptavini mánaðarlega reikning vegna sölu á hugbúnaði og/eða þjónustu. Félaginu er heimilt að reikningsfæra samningsbundna þjónustu mánuð fram í tímann. Sú þjónusta sem greidd er eftir mældri notkun er almennt reikningsfærð í lok mánaðar eða byrjun næsta mánaðar, enda liggi fyrir allar nauðsynlegar upplýsingar um notkun. Virðisaukaskattur leggst við mánaðarlega reikninga.
Gjalddagi reiknings miðast við útgáfudag en almennt skal eindagi vera 20 dögum eftir gjalddaga. Falli reikningur eða aðrar samningsskuldbindingar í eindaga ber viðskiptavini að greiða dráttarvexti í samræmi við III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001.
Athugasemdir skulu gerðar við reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga þeirra. Teljast reikningar ella samþykktir af hálfu viðskiptavinar. Þjónustugjald er ekki endurgreitt.

6.2. Aukaverk

Aukaverk teljast öll verk sem ekki falla innan samnings aðila. Greiða skal fyrir öll aukaverk sem félagið vinnur í þágu viðskiptavinar að hans ósk samkvæmt verðskrá eða samþykktum viðskiptakjörum á milli aðila. Ef nauðsynlegt er skal félaginu vera heimilt að grípa til aðgerða til varnar tjóni fyrir viðskiptavin án samþykkis hans og skal farið með slíkar aðgerðir sem aukaverk.
Lágmarksgjald fyrir aukaverk eru 2 klst. á dagvinnutíma og 4 klst. utan dagvinnutíma, samkvæmt verðskrá. Dagvinnutími er skilgreindur sem 07:30-16:15 mán-fim og 07:30-12:30 fös.[A7.1]

6.3. Breytingar á verðskrám

Félagið áskilur sér rétt til að breyta verðskrám sínum eftir þörfum hverju sinni. Félagið áskilur sér rétt til þess að breyta verði, þ.m.t. í samræmi við breytingar á vísitölu og/eða í samræmi við gengisþróun krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum vegna notendaleyfa og búnaðar sem félagið greiðir fyrir í erlendri mynt. Skulu slíkar verðbreytingar almennt tilkynntar viðskiptavini með 30 daga fyrirvara. Við óvenjulegar aðstæður svo sem við gengislækkun á skömmum tíma, er félaginu heimilt að tilkynna viðskiptavini um verðbreytingar með 3 daga fyrirvara.

6.4. Ferðakostnaður og flutningsskilmálar

Viðskiptavinur skal greiða fyrir allan ferða- og flutningskostnað, þ.m.t. kostnað vegna eftirfarandi, samkvæmt verðskrá:

  • flutning á búnaði frá húsakynnum félagsins á umbeðinn stað,
  • flutning á búnaði vegna viðgerða,
  • ferðakostnað og ferðatíma vegna þjónustu á stöðum, þar sem félagið hefur ekki að staðaldri starfsfólk sem þjálfað er til að veita þjónustu við hlutaðeigandi búnað,
  • vinnutíma og ferðakostnað vegna aðgerða sem falla utan umsamins þjónustutíma,
  • vinnutíma á ferðum og ferðalögum, ferðakostnað og flutningsgjöld, sem falla utan við umsamda þjónustu við búnað,
  • ferðakostnað og ferðatíma vegna búnaðar, sem fellur undir viðgerðar- og útskiptiþjónustu, og
  • ferða- og flutningskostnað vegna ábyrgðarþjónustu búnaðar, óháð því hvar slík þjónusta er veitt.

7. Skyldur viðskiptavina

Viðskiptavinum ber að gera félaginu kleift að sinna þeim hluta þjónustunnar sem fer fram á vinnustað viðskiptavinar og eftir atvikum hjá þriðja aðila, s.s. með því að veita starfsfólki félagsins fullnægjandi aðgang að nauðsynlegum rýmum.
Viðskiptavinir bera jafnframt ábyrgð á að veita félaginu fullnægjandi upplýsingar svo félagið geti sinnt þjónustu sinni. Þá bera viðskiptavinir ábyrgð á þeim leiðbeiningum og fyrirskipunum sem þeir veita félaginu, sem og á réttmæti þeirra upplýsinga sem gefnar eru félaginu.

8. Ábyrgð á galla

Félagið ber ábyrgð á því að þjónusta og búnaður sé í samræmi við samning aðila, að teknu tilliti til ábyrgðartakmarkana í skilmálum þessum.
Reikningur fyrir búnaði eða þjónustu gildir sem ábyrgðarskírteini og hefst ábyrgðartími þegar búnaðurinn er afhentur eða þjónustan er innt af hendi, ellegar við dagsetningu reiknings, hvort sem fyrr er.
Tilkynningar um galla skulu berast félaginu með þeim samskiptaleiðum sem lýst er á vefsíðu félagsins. [A8.1][IB8.2]Viðskiptavinur félagsins glatar rétti sínum til þess að bera fyrir sig galla ef hann tilkynnir ekki félaginu um gallann án ástæðulauss dráttar frá því að hann varð galla var eða mátti verða hans var og í hverju galli var fólginn.
Ef viðskiptavinur leggur ekki fram kvörtun innan árs frá þeim degi er hann veitti búnaði eða þjónustu viðtöku, getur hann ekki síðar borið gallann fyrir sig. [A9.1]
Ábyrgð á búnaði er háð því að notkun búnaðar hafi verið í samræmi við kerfisskráarlýsingar, handbækur og aðrar leiðbeiningar um notkun. Það sama á við um hverskyns þjónustu sem veitt er af félaginu.
Félagið ábyrgist ekki að hugbúnaður vinni villulaust, án reksturstruflana eða að allar villur hafi verið lagfærðar. Í þeim tilvikum er félagið er endursöluaðili búnaðar gilda þær ábyrgðartakmarkanir sem eigandi búnaðar hefur sett, svo framarlega sem slíkar takmarkanir stangast ekki á við íslensk lög.

9. Undantekningar á ábyrgð

Öll þjónusta er veitt án skuldbindinga um viðbragðstíma, nema samið sé um það sérstaklega eða kveðið á um slíkt í sérskilmálum. Þá er þjónusta jafnframt veitt án skuldbindinga um tiltæka varahluti hverju sinni í þeim tilvikum er viðskiptavinur leigir eða kaupir búnað af félaginu. Félagið ábyrgist ekki að hugbúnaður eða þjónusta sé gallalaus, starfi rétt, virki án reksturstruflana, eða að allar hugbúnaðarvillur sem og aðrar villur séu lagfærðar.

Félagið ber ekki ábyrgð á tjóni eða atvikum sem rekja má til:

  • þess að ábyrgðarinnsigli hefur verið rofið eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð, eða átt við búnaðinn, af öðrum en viðurkenndum aðila (félagið eða verkstæði viðurkennd af félaginu),
  • breytinga á veituspennu, rafmagnstruflana eða annarra utanaðkomandi áhrifa,
  • sambandsleysis, rofs á fjarskiptum, þjónustu eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskiptanetsins hvort sem slíkt má rekja til línubilana, bilana í stöðvum eða annarra ástæðna, nema rekja megi tjónið til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis af hálfu félagsins,
  • athafna eða athafnaleysis viðskiptavinar eða þriðja aðila á vegum viðskiptavinar,
  • rangrar, eða slæmrar notkunar á búnaði eða þjónustu félagsins,
  • notkunar samsetts búnaðar af einingum frá félaginu og einingum frá öðrum aðilum, sem félagið hefur ekki afhent í heild sinni,
  • hugbúnaði sem settur hefur verið upp af viðskiptavini eða öðrum þriðja aðila á umhverfi viðskiptavinar,
  • virkni búnaðar, þ.m.t. hugbúnaðar frá þriðju aðilum
  • notkunar hugbúnaðar eða gagna í stafrænu formi, svo og ef slík gögn glatast eða týnast, af hvaða ástæðum sem er,
  • þess að leiðbeiningum framleiðanda búnaðar og/eða félagsins um hirðu, notkun, álag, íhluti eða viðhald er ekki fylgt, eða
  • þess að bilun stafar af rangri tengingu við rafkerfi eða netkerfi, eða bilun má rekja til óhæfs umhverfis, svo sem vegna ryks, hitastigs eða rakastigs.

Félagið ber ekki ábyrgð á gögnum og varðveislu þeirra, sem vistuð kunna að vera á búnaði. Því skal viðskiptavinur, áður en leitað er ábyrgðarþjónustu, gera nauðsynlegar ráðstafanir til verndar hugbúnaði, gögnum í stafrænu formi og verðmætum, sem um er að ræða í vélbúnaði og fjarlægja (ef um útskiptingu er að ræða) alla flytjanlega geymslumiðla og annan búnað, sem heyrir ekki vélbúnaðinum til.
Félagið ábyrgist ekki að hægt sé að þjónusta búnað sem hefur verið merktur „end of life“ (EOL) hjá framleiðanda, þar sem að sú merking þýðir að allri aðstoð, uppfærslu og öryggisviðhaldi hafi verið hætt hjá framleiðanda.
Starfi vélbúnaður ekki í samræmi við lýsingarkröfur á ábyrgðartíma og félagið hefur ekki getað lagfært galla eða skipt út búnaðinum fyrir annan vélbúnað með hliðstæðri vinnslugetu innan sanngjarns tíma, á viðskiptavinur rétt á að skila búnaðinum til félagsins og fá söluverðið endurgreitt

10. Takmarkanir á skaðabótaskyldu

Verði viðskiptavinur fyrir tjóni vegna þjónustu félagsins kann viðskiptavinur að eiga rétt til skaðabóta úr hendi félagsins.
Réttur viðskiptavinar til skaðabóta úr hendi félagsins skal þó takmarkast við beint tjón og bótaábyrgð félagsins nær ekki til óbeins eða afleidds tjóns, þ.m.t. rekstrartaps, tapaðra gagna sem leiða kann af notkun á hugbúnaði eða ómöguleika á notkun hugbúnaðar, missis hagnaðar eða viðskiptavildar eða vanefndar viðskiptavinar á samningi við þriðja aðila. Þá er félagið ekki bótaskylt vegna tjóns sem ekki verður rakið til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis félagsins eða þeirra starfsmanna sem félagið ber ábyrgð á.
Skapist bótaskylda á hendur félaginu skal bótaábyrgð félagsins takmarkast eins og hér er lýst:
Vegna kaupa og/eða leigu á búnaði (að undanskildum hugbúnaði): Jafnvirði kr. 2.400.000 eða reikningsfærðs kaupverðs þess búnaðar, sem annað hvort orsakaði tjónið eða varð fyrir tjóni, hvort sem lægra er.
Vegna þjónustu, þ.m.t. hýsingu og aðgangs að [A10.1][A10.2][A10.3]hugbúnaði: Jafnvirði kr. 1.200.000 eða þriggja mánaða þjónustugjalds fyrir þjónustu sem orsakaði tjónið, hvort sem lægra er.
Bótaþak skal miðast við samanlagða bótafjárhæð félagsins á grundvelli samnings aðila.
Undir engum kringumstæðum getur heildarbótaábyrgð félagsins verið hærri en kr. 15.000.000.

11. Óviðráðanleg atvik

Geti félagið vegna óviðráðanlegra atvika ekki efnt skyldur sínar gagnvart samningsaðila er félagið laust undan öllum skuldbindingum sínum um þann tíma sem óviðráðanleg atvik (e. force majeure) standa yfir og samningsaðili á ekki rétt til að beita vanefndaúrræðum gagnvart félaginu, þ.m.t. kröfum um endurgreiðslu, afslátt, skaðabætur, uppsögn eða riftun.
Með óviðráðanlegum atvikum er átt við atburð eða aðstæður sem ekki eru á valdi félagsins enda sé þannig háttað um þau að félaginu hafi ekki verið unnt að yfirvinna þau með eðlilegum ráðum. Án takmörkunar um almennt gildi þess sem að framan greinir skulu atburðir og atvik m.a. taka til styrjalda, uppreisna, skemmdarverka, óeirða, farsótta, náttúruhamfara, aðgerða stjórnvalda svo sem á sviði gjaldeyris- og viðskiptamála, viðskiptabanna, hafnbanna, almennra samgönguhindrana, flutningsbanna, orkuskorts, hvers kyns netárása, óviðráðanlegra atvika í samskiptum við undirverktaka og birgja og hvers kyns ámóta atvika sem valda röskun á efndum félagsins, þ.m.t. ef birgjar eða þjónustuaðilar félagsins geta ekki uppfyllt skuldbindingar sínar gagnvart félaginu á grundvelli óviðráðanlegra atvika sem leiða til þess að félagið geti ekki efnt skuldbindingar sínar gagnvart samningsaðila. Komi til þess að óviðráðanleg atvik standi yfir í 30 daga samfellt eða lengur getur félagið rift eða sagt upp samningi við samningsaðila fyrirvaralaust án þess að baka sér bótaskyldu.

12. Vanefndir og vanefndaúrræði

Félagið áskilur sér rétt til að hætta að veita og eftir atvikum loka á hugbúnað og/eða þjónustu til viðskiptavinar komi til vanefnda af hálfu viðskiptavinar.
Til viðbótar öðrum réttindum félagsins er félaginu heimilt án undanfarandi tilkynningar til viðskiptavinar að fjarlægja efni, sem brýtur gegn lögum og reglum, af vélbúnaði eða öðrum búnaði og synja viðskiptavini um þjónustu og frekari kaup og leigu á búnaði, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 30 daga frá eindaga.

Enn fremur er félaginu heimilt að beita öllum vanefndaúrræðum, þ.m.t. riftun, ef:

  • viðskiptavinur greiðir ekki reikning félagsins innan 30 daga eftir eindaga,
  • viðskiptavinur uppfyllir ekki samningsbundna skyldu sína við félagið innan 30 daga frá dagsetningu skriflegrar áskorunar frá félaginu um að efna skyldu sína,
  • viðskiptavinur notar hugbúnað með öðrum hætti en notkunarskilmálar eða aðrar útgefnar leiðbeiningar um meðferð hans kveða á um,
  • viðskiptavinur notar hugbúnað umfram það sem félagið skilgreinir sem hámarksnotkun á tilgreindu tímabili,
  • viðskiptavini er veitt heimild til greiðslustöðvunar, hann fær heimild til að leita nauðasamninga eða verður gjaldþrota, eða
  • aðrir en starfsmenn félagsins hafa, án undanfarandi samþykkis félagsins, þjónustað búnað félagsins.

Á meðal þeirra vanefndaúrræða sem félaginu er heimilt að beita hafi viðskiptavinur vanefnt skyldur sínar gagnvart félaginu, þ.m.t. með framangreindum hætti, er að:

  • rifta eða segja upp samningi að hluta eða í heild,
  • taka búnað, þ.m.t. hugbúnað, í sína vörslu eða gera hann ónothæfan, og
  • innheimta allar gjaldfallnar og ógjaldfallnar greiðslur samkvæmt viðkomandi samningi.

Tilkynning um riftun skal vera skrifleg og send með sannanlegum hætti.
Verði samningi rift af hálfu félagsins ber viðskiptavini að greiða áfallin gjöld samkvæmt samningi aðila auk alls kostnaðar félagsins. Enn fremur skal viðskiptavinur halda félaginu skaðlausu af öllum útgjöldum og tekjumissi, sem félagið kann að verða fyrir vegna vanefnda viðskiptavinar á samningi.

13. Trúnaðarskyldur

Aðilar skulu virða sem trúnaðarmál allar þær upplýsingar sem þeir kunna að öðlast vegna framkvæmdar samnings aðila, þ. á m. um efni samningsins, kerfi aðila, tengdan hugbúnað, viðskiptamenn, viðskiptasambönd, rekstur, starfsemi, fjármál og viðskiptahætti gagnaðila. Trúnaðarskylda skal haldast eftir að samningi er lokið.

14. Persónuvernd

Félagið leggur áherslu á að öll vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við gildandi persónuverndarlög. Félagið kemur fram sem ábyrgðaraðili í skilningi persónuverndarlaga hvað varðar vinnslu persónuupplýsinga forsvarsmanna og tengiliða sem koma fram fyrir hönd fyrirtækja og annarra lögaðila í viðskiptum við félagið. Um vinnslu félagsins á slíkum upplýsingum vísast til persónuverndarstefnu félagsins sem finna má á vefsíðu Rafholts.
Komi til þess að félagið vinni persónuupplýsingar fyrir hönd viðskiptavinar, s.s. í tengslum við þá upplýsingatækniþjónustu sem félagið veitir viðskiptavini, kemur viðskiptavinur fram sem ábyrgðaraðili slíkrar vinnslu í skilningi persónuverndarlaga og félagið sem vinnsluaðili. Undir slíkum kringumstæðum gilda skilmálar félaganna um vinnslu persónuupplýsinga, sem aðgengilegir eru á vefsíðu Rafholts, Skilmálar um vinnslu persónuupplýsinga félagsins.

15. Hugverkaréttur

Skilmálar þessir skulu ekki hafa áhrif á hugverkarétt að búnaði, þ.mt. hugbúnaði, sem seldur er viðskiptavini eða hann fær aðgang að. Um rétt viðskiptavinar til notkunar á slíkum réttindum gilda sérstakir skilmálar viðeigandi rétthafa.
Í þeim tilvikum er þjónusta félagsins við viðskiptavin felur í sér aðgang að efni, þ.á m. búnaði, gagnagrunnum, handbókum o.s.frv., sem félagið hefur þróað eða er rétthafi að, skal allur hugverkaréttur tilheyra Rafholti. Þar undir fellur m.a. hvers konar höfundaréttur, vörumerkjaréttur, hönnunarréttur, viðskipta- og atvinnuleyndarmál, sérþekking (e. know-how) sem og einkaleyfi. Á það jafnframt við um efni sem félagið hefur unnið á grundvelli samnings aðila nema um annað sé sérstaklega samið. Ekkert framsal á hugverkaréttindum á sér því stað milli aðila. Á grundvelli samnings aðila skal viðskiptavinur hins vegar fá óframseljanlegt leyfi til að nota viðkomandi efni á gildistíma samnings aðila, eftir því sem við á.
Allur hugverkaréttur að efni sem viðskiptavinur hefur unnið, hannað og þróað án aðkomu félagsins skal tilheyra viðskiptavini og ekkert framsal á slíku efni á sér stað nema um annað sé samið. Veiti viðskiptavinur félaginu aðgang að slíku efni í tengslum við þjónustuna veitir viðskiptavinur félaginu þar með óframseljanlegt leyfi til að nota efnið á samningstíma og skal viðskiptavinur halda félaginu skaðlausu af hvers konar kröfum þriðja aðila er byggja á því að notkun félagsins á efninu brjóti gegn betri rétti viðkomandi.
Skapist óvissa um hugverkaréttindi félagsins sem félagið hefur veitt viðskiptavini leyfi til að nota á grundvelli samnings aðila, s.s. vegna kröfu þriðja aðila sem telur efni félagsins brjóta gegn betri rétti viðkomandi, skal félagið ákveða hvort félagið breyti efninu, útvegi viðskiptavini sambærilegt efni eða hvort félagið semji við þriðja aðila um notkun á efninu á meðan ágreiningur stendur yfir.
Félaginu er ekki heimilt að vísa til viðskiptavinar á vefsíðu sinni eða birta vörumerki hans þar, sem og í öðru kynningarefni á vegum félagsins, nema með samþykki viðskiptavinar. Viðskiptavinur skal jafnframt leita samþykkis félagsins fyrir slíkri notkun á nafni og vörumerkjum í eigu félagsins.

16. Gögn viðskiptavina

Viðskiptavinur telst eigandi þeirra gagna sem félagið mun eftir atvikum fá aðgang að í tengslum við þá þjónustu sem félagið veitir viðskiptavin. Félaginu er þó heimilt að nota gögnin í þeim tilgangi að veita viðskiptavin umbeðna þjónustu, til að tryggja öryggi og vegna nauðsynlegra viðgerða og viðhalds. Þá skal félaginu heimilt að nota ópersónugreinanleg gögn og upplýsingar félagsins í þeim tilgangi að tryggja gæði þjónustu og til að bæta og þróa þjónustuna.
Félagið tryggir aðgengi að gögnum sem falla undir reglugerð (ESB) 2023/2854 (gagnalöggjöfina), þó að undanskildum gögnum sem félagið hefur unnið frekar, leitt út eða ályktað (e. inferred or derived data). Félaginu er heimilt að takmarka eða synja um aðgang ef nauðsyn krefur vegna ákvæða annarra löggjafar, öryggissjónarmiða, hugverkaréttinda eða til verndar viðskiptaleyndarmála, og getur krafist undirritunar trúnaðaryfirlýsingar eða tæknilegra ráðstafana sem skilyrði fyrir afhendingu.
Viðtakanda gagna er með öllu óheimilt að nota afhent gögn, beint eða óbeint, til að þróa vöru eða þjónustu sem keppir við þjónustu félagsins.

17. Vefsíða

Allar upplýsingar á vefsíðu Rafholts eru birtar með fyrirvara um villur, hvort sem um er að ræða almennan texta, vöru- og/eða þjónustulýsingar, verð eða myndir.
Félagið ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna notkunar/misnotkunar þriðja aðila á vefsíðum félagsins.

18. Annað

18.1. Samningssamband viðskiptavinar við þriðja aðila

Í tengslum við endursölu félagsins á þjónustu, leyfum og búnaði þriðju aðila til viðskiptavinar kann að myndast beint samningssamband milli viðkomandi þriðja aðila og viðskiptavinar. Í slíkum tilvikum gengst viðskiptavinur þá undir skilmála viðkomandi þriðja aðila eða ber ábyrgð á að ganga frá sérstökum samningi við viðkomandi sem er félaginu óviðkomandi.

18.2. Framsal réttinda og undirverktakar

Félaginu er heimilt að framselja, að hluta eða öllu leyti, réttindi sín og skyldur, samkvæmt skilmálum þessum, auk annarra samninga félagsins við viðkomandi viðskiptavin, til félags í sinni eigu með tilkynningu til viðskiptavinar. Þá skal félaginu heimilt að framselja réttindi sín og skyldur að hluta eða öllu leyti á grundvelli þessara skilmála til þriðja aðila, sé ekki mælt fyrir um annað í samningi aðila. Viðskiptavinum er óheimilt að framselja réttindi sín og skyldur án samþykkis félagsins.
Félaginu er heimilt að útvista verkefnum í tengslum við samning aðila, að hluta eða öllu leyti, til þriðja aðila, að því marki sem heimilt er samkvæmt lögum og eftir atvikum skilmálum félagsins um vinnslu persónuupplýsinga.

18.3. Lög og varnarþing

Samningssamband félagsins við viðskiptavini sína fellur undir íslensk lög.
Komi til ágreinings að öðru leyti sem ekki tekst að sætta skal leysa úr máli með gerðarmeðferð í samræmi við reglugerð Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands sem í gildi er þegar gerðarmeðferð hefst og skal reglugerðin fyrir gerðardóminn gilda um málsmeðferð. Ákvæði þetta ásamt reglugerðinni telst gerðarsamningur milli aðila.
Ef einhver ákvæði skilmála þessara eða samnings aðila eru í andstöðu við ófrávíkjanleg lög og reglur sem um þá gilda eða ef slík ákvæði eru dæmd ógild af gerðardómi eða dómstóli sem hefur lögsögu yfir samningsaðilum, skulu slík samningsákvæði umorðuð á þann veg að sem minnst röskun verði á upphaflegum tilgangi samningsaðilanna innan ramma viðkomandi laga og dómsúrlausna, og skulu ákvæði skilmálanna og/eða samnings aðila að öðru leyti halda fullu gildi.

18.4. Breytingar á skilmálum

Félagið áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum og munu breytingarnar verða tilkynntar með a.m.k. 30 daga fyrirvara á vefsíðu Rafholts.

Skilmálar þessir voru síðast uppfærðir þann 11. maí 2026.