Framúrskarandi
Rafholt er 21 árs framsækið fyrirtæki sem hefur árum saman verið eitt stærsta fyrirtæki landsins í rafiðnaðargeiranum.
Við hjá Rafholti leggjum áherslu á að gera það sem í okkar valdi stendur til að skapa okkur gott orðspor og traust hjá viðskiptavinum, starfsfólki og í samfélaginu í heild. Stærsti auður fyrirtækisins felst í starfsfólkinu, þekkingu þess og reynslu. Allir starfsmenn njóta jafnréttis, óháð kyni, uppruna og trú.
Við erum stolt af því að tilheyra hópi framúrskarandi fyrirtækja á lista Creditinfo. Á hverju ári hlýtur einungis lítið hlutfall af fyrirtækjum þessa viðurkenningu. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem eru listuð hér að neðan.
Skilyrðin
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skal skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag. Tekið verður tillit til allra opinberra framlenginga RSK á skilafresti
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur að lágmarki 55 milljónir króna reikningsárið 2022 og a.m.k. 50 milljónir króna 2021 og 2020
- Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 5 milljarða króna þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni
- Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Rekstrarhagnaður (EBIT) > 0 reikningsárin 2020-2022
- Jákvæð ársniðurstaða reikningsárin 2020-2022
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% reikningsárin 2020-2022
- Eignir að minnsta kosti 110 milljónir króna reikningsárið 2022 og a.m.k. 100 milljónir króna 2021 og 2020
Árið 2023 var ellefta árið sem Rafholt vermir sæti á listanum og stefnum við á að vera þar áfram.