Skip to main content

Jafnlaunastefna

 

Rafholt leggur metnað sinn í að tryggja öllum starfsmönnum jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, þannig að launamunur sé ekki til staðar. Umfang jafnlaunastefnunnar tekur til allra starfsmanna innan fyrirtæksins.

Markmið Rafholts er að vera eftirsóttur vinnustaður þar sem allir starfsmenn hafa jöfn tækifæri í starfi.

Stjórnendur skuldbinda sig því að fara eftir þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda. Rafholt hefur skjalfest, innleitt, og heitir að viðhalda og bæta stöðugt virkni jafnlaunakerfis sem uppfyllir kröfur ÍST 85:2012 staðalsins.

Samkomulag hefur verið gert við vottunaraðila um að framkvæma árlega úttekt á jafnlaunastefnu og kerfi Rafholts. Geri vottunaraðili á einhverjum tímapunkti athugasemdir varðandi launasamsetningu einhverra starfa mun samsetning vera endurskoðuð í kjölfar ábendingar og lagfærð.

Rafholt hefur í þessu samhengi innleitt verklag og skilgreint viðmið við ákvörðun launa þar sem hver og einn fær greitt fyrir starf sitt út frá verðmæti þess óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum ástæðum. Rafholt skuldbindur sig til að framfylgja jafnlaunastefnunni í hvívetna.

Rafholt skuldbindur sig til að:

  • Innleiða vottað jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85, það verði skjalfest og því viðhaldið.
  • Framkvæma launagreiningu a.m.k. einu sinni á ári þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf og athugað hvort mælist munur á launum eftir kyni og kynna helstu niðurstöður fyrir starfsfólki.
  • Bregðast við óútskýrðum launamun
  • Gera innri úttekt
  • Halda rýni stjórnenda árlega þar sem virkni kerfisins er metin og að setja fram mælanleg markmið fyrir komandi ár.
  • Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma skv. lögum 150/2020.
  • Kynna starfsmönnum þessa stefnu og gera hana aðgengilega almenningi á heimasíðu

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á jafnlaunastefnu Rafholts og að henni sé framfylgt. Mannauðs- og gæðastjóri er ábyrgðaraðili jafnlaunakerfisins og ber ábyrgð á innleiðingu og viðhaldi þess í samræmi við staðalinn IST 85.