Origo og Rafholt hafa undirritað samkomulag um sameiningu Rafholts og Orku- og innviðasviðs Origo undir kennitölu Rafholts. Rafholt er leiðandi félag í almennri og sérhæfðri rafverktöku með yfir 20 ára rekstrarsögu. Origo hefur á undanförnum árum og áratugum byggt upp sérþekkingu á orku- og kæliinnviðum gagnavera og annarra stórnotenda öruggrar orku. Saman mynda félögin nýtt og leiðandi afl í þróun og þjónustu á mikilvægum stafrænum innviðum, öruggri orku og orkuskiptum.
Rafholt er í meirihluta eigu fjárfestingarsjóðs á vegum Aldir, og í minnahlutaeigu stofnenda félagsins. Origo er að fullu í eigu Skyggnis eignarhaldsfélags, sem er í meirihlutaeigu fjárfestingasjóðs undir stjórn Alfa Framtaks. Núverandi hluthafar verða allir áframhaldandi þátttakendur í þeirri vegferð sem framundan er, ásamt lykilstjórnendum sameinaðs félags.
Hjá sameinuðu félagi munu starfa um 170 starfsmenn og áætluð velta 2026 er yfir 6 ma.
Með sameiningunni verður til öflugur þjónustuaðili innviða með slagkraft og getu til þess að styðja innlenda og erlenda aðila við uppbyggingu á gagnaverum, stafrænum innviðum fyrirtækja og stofnana, stórnotendur öruggrar orku eins og sjúkrahús, hótel, landeldi, líftækni og önnur sérhæfð framleiðslu- og iðnfyrirtæki. Meðal alþjóðlegra samstarfsaðila félagsins eru Schneider Electric, ThermoKey, PM Energy, Logstrup og fleiri leiðandi framleiðendur á sviði sérhæfðs orku- og kælibúnaðar fyrir mikilvæga innviði.
Meðal viðskiptavina sameinaðs félags eru öll stærri gagnaver sem rekin eru á Íslandi, þar á meðal AtNorth, Verne og Borealis, auk fjölda annarra kröfuharðra viðskiptavina.
„Með sameiginlegri þekkingu og þjónustu erum við komin með slagkraft til að mæta auknum kröfum markaðarins sem kallar á mikla tæknilega getu og gæði í afhendingu flókinna verkefna.“ segir Helgi Ingólfur Rafnsson, framkvæmdarstjóri Rafholts.
„Við höfum ætíð lagt áherslu á að styðja þróun stafrænna innviða og orkuskipti til framtíðar. Með því að sameinast Rafholti eflum við enn frekar hæfni okkar til að bjóða viðskiptavinum alhliða innviðalausnir í samstarfi við leiðandi alþjóðlega framleiðendur.“ segir Örn Þór Alfreðsson, framkvæmdastjóri Orku- og innviðasviðs Origo.
Sameinuðu félagi er ætlað að bregðast við auknum kröfum viðskiptavina, innlendra jafnt sem erlendra og vaxandi þörf á sérhæfingu í uppbyggingu og þjónustu á flóknum upplýsingatækniinnviðum, s.s. á sviði há-, mið- og lágspennu, ljósleiðaratengingar, varaafls til skemmri og lengri tíma og kælingar, hvort sem er í formi vökva eða loftskipta.
Sérfræðingar félagsins vinna náið með viðskiptavinum frá hönnunarstigi til innleiðingar og við þjónustu og rekstur eftir innleiðingu. Markmið félagsins er að styrkja framtíðarinnviði og efla samkeppnishæfni Íslands.
Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Nánari upplýsingar veita Helgi I. Rafnsson, framkvæmdastjóri Rafholts, í síma 6956447, Heiðar Ingi Ólafsson, stjórnarformaður Rafholts í síma 8567421 og Ari Daníelsson, forstjóri Skyggnis eignarhaldsfélags í síma 8445174.



