Creditinfo bauð til hátíðar í Hörpu í gær þar sem árlegur listi yfir Framúrskarandi fyrirtæki var kynntur. Rafholt vermir sæti á listanum í tólfta sinn.
Markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur að baki framúrskarandi árangri. Vottun Framúrskarandi fyrirtækja er mikilvægur þáttur í markaðssókn þeirra sem vilja efla traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Það er því eftirsóknarvert að skara fram úr.
Það er alls ekki sjálfgefið að vera á meðal þeirra bestu og eru eigendur afskaplega stoltir af þessari viðurkenningu en að baki henni liggur þrotlaus vinna eigenda og starfsmanna.