Skip to main content

Afhending sveinsbréfa í raf-, rafveitu-, rafvéla- og rafeindavirkjun voru afhend við hátíðlega athöfn á Hilton Nordica 2. september síðastliðinn.

77 rafvirkjar, 4 rafeindavirkjar, 8 rafveituvirkjar og 3 rafvélavirkjar luku sveinsprófum að þessu sinni. Þar af voru sex starfsmenn Rafholts sem tóku á móti sveinsbréfi í rafvirkjun, þeir Brynjar Þór Ingibergsson, Einar Kári Sigurðsson, Grétar Áki Andersen, Magnús Orri Fjölvarsson, Sigurður J. Hallbjörnsson og Sæmundur Óskarsson.

Við erum stolt af okkar mönnum og óskum þeim innilega til hamingju með áfangann.

Myndir og nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á vef Rafmenntar: Afhending sveinsbréfa í raf-, rafveitu-, rafvéla-, og rafeindavirkjun | Rafmennt