Skip to main content

Við hjá Rafholti tókum þátt í því að lýsa upp skammdegið á „Bleika deginum“.

Rafholt hefur styrkt átak Krabbameinsfélagsins sem tengist deginum undanfarin ár og gerir það einnig í ár.

Starfsmenn fengu allir boli merkta átakinu sem þeir klæddust í tilefni dagsins. Við nýttum tækifærið til að hóa fólkinu saman og buðum upp á borgara í hádeginu á starfsstöðvum í Kópavogi og í Reykjanesbæ.