Skip to main content

Rafholt hefur nú að mestu lokið vinnu við raflagnir í nýju og glæsilegu hóteli við Lækjargötu í Reykjavík. Framkvæmdir við raflagnahlutann hófust í byrjun árs 2019 og hefur því starfsfólk Rafholts verið í húsinu í fjögur ár. Verkið var krefjandi og skemmtilegt og ekkert til sparað varðandi raflagnir, lýsingu og stýringar.

Hótel Reykjavik Saga er einstaklega vel staðsett í hjarta miðbæjarins, nokkrum skrefum frá Tjörninni, Dómkirkjunni, listasöfnum og fjölmörgum verslunum og veitingastöðum.

Á hótelinu er má finna veitingastaðinn Fröken Reykjavik og fyrsta flokks líkamsræktaraðstöðu og heilsulind.