Skip to main content

Rafholt ehf. hóf framkvæmdir við nýjar höfuðstöðvar Icelandair HQ að Flugvöllum 1 í Hafnarfirði í nóvember 2023. Um er að ræða stækkun á þjálfunarsetri félagsins um 5.000 fermetra og gera áætlanir ráð fyrir því að öll starfsemi félagsins á höfuðborgarsvæðinu verði komin undir eitt þak síðla árs 2024.

Arkitektar eru NordicArch, stýriverktaka er á höndum Eyktar og framkvæmdaraðili er Icelandair ehf.

Verklok eru áætluð 2024-2025.