Skip to main content

Rafholt ehf. hefur hafið næsta áfanga í framkvæmdum að Köllunarklettsvegi 1. Eigandi er Kaldalón og framkvæmdaraðili Hafnargarður ehf. Á reitnum verður rekinn klasi á sviði sjálfbærni og hringrásar. Meðal leigutaka eru Byggðasamlagið Sorpa og Alþingi. Heildarstærð fullbúinnar fasteignar er um 12.300 m2. Áætluð verklok í þessum áfanga er haustið 2023.

Hluti fasteigna er þegar afhentur leigutökum og má geta þess að Góði Hirðirinn opnaði þar glæsilega verslun þann 1. apríl sl.