Skip to main content

Á dögunum voru starfsmenn Rafholts á Suðurnesjum ásamt Rúko hf. með námskeið á Optijet blástursvél frá Plumett fyrir starfsmenn Mílu. Rúko er innflutningsaðili á Plumett blástursvélum á Íslandi.

Plumett er svissneskur framleiðandi sem framleiðir mest seldu þræðingarvélarnar fyrir ljósleiðara á Íslandi. Tæknimaður frá Plumett var staddur á Íslandi og var á staðnum.

Starfsmenn Rafholts á Suðurnesjum voru með sýnikennslu en þeir hafa mikla reynslu í því að nota Plumett blástursvélar við ljósleiðaralagnir.