Skip to main content

Laugardaginn 27. janúar héldum við hjá Rafholt námskeið fyrir nemana okkar sem eru á leið í sveinspróf í febrúar. Rafholt hefur haft það fastan lið undanfarin ár að halda námskeið í töflusmíði fyrir sveinspróf en í ár bættum við rafmagnsfræði í dagskránna.

Það var ekki annað að heyra en að allir væru sáttir og viljum við þakka þeim Aðalsteini og Maríu fyrir að miðla sinni reynslu og þekkingu.

Að þessu sinni er tíu nemar hjá okkur að leggja af stað í þessa vegferð og óskum við þeim alls hins besta.