Skip to main content

Creditinfo kynnti í gær sinn árlega lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki í Hörpu. Rafholt er á listanum í ellefta sinn.

Markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur að baki framúrskarandi árangri. Vottun Framúrskarandi fyrirtækja er mikilvægur þáttur í markaðssókn þeirra sem vilja efla traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Það er því eftirsóknarvert að skara fram úr.

Það er alls ekki sjálfgefið að vera á meðal þeirra bestu og eru eigendur afskaplega stoltir af þessari viðurkenningu en að baki henni liggur þrotlaus vinna eigenda og starfsmanna.